Innlent

Lögreglan lýsir eftir strokufanga

Lögreglan í Reykjavík lýsir eftir Ívari Smára Guðmundssyni. Ívar er refsifangi af Litla Hrauni og er að afplána 20 mánaða dóm vegna fíkniefnamála. Hann strauk frá fangaflutningsmönnum, sem starfa á Litla-Hrauni, við Héraðsdóm Reykjavíkur um kl. 15:00 í dag. Hann var klæddur í svartan stuttermabol og græna hettupeysu þegar hann hljóp frá fangaflutningsmönnum. Ívar er 26 ára gamall. Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Ívars eru vinsamlega beðnir um hafa samband við lögregluna í Reykjavík í síma 444-1000.

Ívar er um 180 sentimetrar á hæð og telur lögregla ástæðu til að ætla að Ívar Smári geti verið varasamur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×