Handbolti

Lemgo skellti Gummersbach

NordicPhotos/GettyImages

Einn leikur var í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld og þar gerði Lemgo sér lítið fyrir og vann Gummersbach 34-29 á heimavelli sínum eftir að staðan hafði verið jöfn 19-19 í hálfleik. Lemgo er fyrir vikið komið í toppsæti deildarinnar með 19 stig eftir 11 leiki - einu stigi meira en Gummersbach.

Logi Geirsson skoraði 6 mörk fyrir Lemgo, en Róbert Gunnarsson skoraði 5 mörk úr 5 skotum hjá Gummersbach og Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 3 mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×