Erlent

Umhverfismál ofarlega á baugi í Bandaríkjunum

Demókratar eru óánægðir með framlag George W. Bush í  umhverfismálum.
Demókratar eru óánægðir með framlag George W. Bush í umhverfismálum. MYND/AP

Þrír demókratar í bandarísku öldungadeildinni sem koma til með að verða yfir nefndum um umhverfismál í Bandaríkjunum segjast óánægðir með framlag George W. Bush, bandaríkjaforseta, í umhverfismálum. Þeir segjast ætla að setja á hann pressu um að koma með lög sem takmarka losun gróðurhúsalofttegunda í andrúmsloftið.

Í bréfi sem þeir skrifuðu Bush kom fram að þeir héldu að sigur sinn í kosningunum þýddi ekki aðeins stefnubreytingu í Írak heldur hefðu kjósendur líka verið að gagnrýna stefnu Bush í umhverfismálum.

Fulltrúi Bush á Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Næróbí í Kenía hefur hafnað öllum hugmyndum sem þar hafa fram komið varðandi að takmarka losun gróðurhúsateguna meira en komið er.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×