Innlent

Kveikt í ruslatunnum

Mynd er úr myndasafni.
Mynd er úr myndasafni. MYND/AP

Eldur kviknaði í tveimur ruslatunnum við leikskólann Brákarborg í Brákarsundi í kvöld. Slökkvilið kom fljólega á staðinn og greiðlega gekk að slökkva eldinn þrátt fyrir töluverðan vind. Lítið tjón hlaust af eldinum en fyrir utan ruslatunnurnar sem brunnu skemmdist skjólveggur sem þær stóðu við einnig.

Lögregla telur nær öruggt að kveikt hafi verið í og mun vera að leita að þeim þetta gerðu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×