Erlent

Tom Cruise setur Ítalíu á annan endann

Myndir af Tom og Katie í bænum Bracciano
Myndir af Tom og Katie í bænum Bracciano MYND/AP

Ítalir hafa ekki upplifað annað eins síðan bandamenn frelsuðu Róm úr höndum Þjóðverja, í síðari heimsstyrjöldinni. Tom Cruise ætlar að gifta sig á Ítalíu, og það er allt orðið vitlaust.

Ljósmyndarar fara um í stórum hjörðum eins og hungraðar hýenur, og aðdáendur með stjörnublik í augum mæna í allar áttir í von um að sjá goðin sín. Og, mikil ósköp, það er nóg af goðum í Róm í dag. Meðal þeirra sem þegar eru mætt til að vera viðstödd eru Jim Carrey, Jennifer Lopez, Jada Pinkett, Brooke Shields, David Beckham og John Travolta.

Cruise og hans heittelskaða Katie Holmes ætla að gifta sig í gömlum kastala rétt utan við Róm, í smábænum Bracciano. Og íbúarnir í Braccio maka krókinn. Eigendur íbúða sem snúa að kastalanum leigja sjónvarpstökumönnum og ljósmyndurum svalirnar sínar fyrir tíu milljónir króna á dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×