Erlent

Sjálfsvígsárás í Hillah

Minnst 22 féllu og rúmlega 40 særðust þegar bílsprengja sprakk nærri hópi farandverkamanna í bænum Hilla í Suður-Írak í morgun.

Að sögn lögreglu var sendibíl ekið að hópnum og sprakk bíllinn í loft upp þegar mennirnir flykktust að honum. Flestir hinna látnu voru sjíar.

Árásir sem þessar eru tíðar í Hillah.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×