Innlent

Björgunarsveitarmenn hættir störfum í dag

MYND/Vilhelm

Björgunarsveitarmenn á höfuðborgarsvæðinu hafa hætt störfum í dag eftir að hafa haft í nógu að snúast vegna ófærðar frá því í nótt. Tekist hefur að rýma að mestu Víkurveg í Grafarvogi þar sem fjöldi bíla hefur setið fastur. Nokkrir árekstrar hafa verið í dag en lögreglunni í Reykjavík er ekki kunnugt um slys á fólki. Björgunarsveitarmenn eru þó í viðbragðsstöðu ef ske kynni að veðrið taki að versna á ný.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×