Innlent

Glitnir tekur 49 milljarða króna sambankalán

MYND/Heiða

Glitnir hefur skrifað undir þriggja ára sambankalán sem nemur um 550 milljónum evra eða 49 milljörðum íslenskra króna. Það er jafnframt stærsta sambankalán sem bankinn hefur tekið. 28 alþjóðlegir bankar og fjármálstofnanir frá tólf löndum taka þátt í láninu. Upphaflega var áætlað að taka um 300 milljóna evra sambankalán en vegna mikils áhuga fjárfesta var endanlega fjárhæð lánsins hækkuð í 550 milljónir eins og segir í tilkynningu frá Glitni. Þessi fjármögnun bætist við útgáfu skuldabréfa í Bandaríkjunum í síðustu viku að upphæð 33,5 milljarðar króna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×