Erlent

Annað tilræði í Gaza

MYND/AP

Byssumaður skaut á og særði fyrrum ráðherra í stjórn Palestínu nú rétt í þessu. Ráðherrann heitir Abdel Aziz Shahin og er háttsettur í hinni hófsömu Fatah hreyfingu. Hann hefur líka verið mjög virkur í gagnrýni sinni á Hamas-samtökin að undanförnu. Ekki hefur enn tekist að staðfesta hversu alvarlegt ástand fyrrum ráðherrans er. Árásin átti sér stað á Gaza svæðinu.

Er þetta annað tilræðið sem gert er í Líbanon í dag en fyrr í dag var iðnaðarráðherra landsins myrtur og ekki er vitað hverjir voru þar að baki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×