Erlent

Dætur Bush rændar

Önnur tvíburadætra Georges Bush, forseta Bandaríkjanna, var rænd veski sínu og farsíma á veitingahúsi í Bueons Aires um síðustu helgi. Lífverðir bandarísku leyniþjónustunnar urðu einskis varir.

Systurnar Barbara og Jenna Bush, eru í heimsókn í Argentínu og voru að snæða hádegisverð þegar hlutunum var stolið. AP fréttastofan segir að þjófnaðurinn hafi ekki verið kærður til argentinsku lögreglunnar.

CNN hefur eftir heimildum innan lögreglunnar að systurnar, sem eru 24 ára, hafi aldrei verið í neinni hættu. Óneitanlega þykir þessi uppákoma þó dálítið neyðarleg fyrir leyniþjónustuna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×