Viðskipti erlent

Kerkorian vill stóran hlut í spilavítakeðju

Kirk Kerkorian.
Kirk Kerkorian. Mynd/AFP

Bandaríski auðkýfingurinn Kirk Kerkorian lýsti því yfir í dag að hann hefði hug á að verja sem nemur 825 milljónum dala eða tæplega 60 milljörðum íslenskra króna til að auka við hlut sinn í MGM Mirage, sem á og rekur hótel- og spilavíti í Las Vegas og Atlantic City í Bandaríkjunum.

Fjárfestingafélag Kerkorians á nú þegar rúm 56 prósent hlutafjár í MGM Mirage. Kerkorian ætlar að bjóða sem nemur 55 dölum á hlut en það er 12 prósentum yfir lokagengi félagsins í gær. Gangi kaupin eftir mun Kerkorian fara með um 61,7 prósenta hlut í félaginu.

Kerkorian mun kaupa hlutina í gegnum fjárfestingafélag sitt, Tracinda Corp., sem hann á að fullu. Það er jafnframt einn stærsti hluthafinn í bílaframleiðslufyrirtækinu General Motors (GM) með um 10 prósent hlutafjár. Það var einmitt Kerkorian, sem átti frumkvæðið að viðræðum GM, Nissan Motors og Renault um hugsanlegt samstarfs. Viðræðurnar runnu út í sandinn í byrjun október.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×