Erlent

Rottweiler hundar bíta unga konu til bana

Rottweiler hundar eru almennt álitnir hættulegir.
Rottweiler hundar eru almennt álitnir hættulegir. MYND/Vísir

Fjórir rottweiler hundar bitu unga konu til bana í húsi nálægt París í Frakklandi í dag. Bitu þeir hana sérstaklega illa á andliti og á handleggjum samkvæmt fregnum frá lögreglu. Varð hún að skjóta hundana til bana til þess að komast að líki konunnar.

Lögrega gat ekki sagt hvernig konan hefði lent í þeim kringumstæðum sem leiddu til dauða hennar. Franska ríkisstjórnin tilkynnti um hert lög um eignarhald á hættulegum hundum eftir að tvo ungabörn voru bitin til bana á aðeins þremur vikum nú í sumar. Rottweiler hundar, sem eru stórir og kraftmiklir, eru skilgreindir sem "varnarhundar" í Frakklandi og einnig hafa þeir bannað þeim sem eru að sakarskrá að eiga slíka hunda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×