Erlent

Kristilegum demókrötum spáð sigri í Hollandi

Kjósendur í Hollandi í dag.
Kjósendur í Hollandi í dag. MYND/AP

Búist er við því að flokkur Kristilegra demókrata eigi eftir að bera sigur úr býtum í þingkosningum í Hollandi sem fram fóru í dag en þó er ekki búist við því að þeir nái hreinum meirihluta á þinginu. Þetta sýna útgönguspár hollensku sjónvarpsstöðvarinnar RTL.

Búist er við því að Kristilegir demókratar eigi eftir að vinna um 38 sæti á meðan Verkamannaflokkurinn, sem er í andstöðu við sitjandi ríkisstjórn Kristilegra demókrata, eigi eftir að hljóta 34 sæti en alls sitja um 150 fulltrúar á hollenska þinginu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×