Innlent

Aðstoðuðu ökumann á Steingrímsfjarðarheiði

Björgunarsveitarmenn frá Hólmavík fóru í leiðangur upp á Steingrímsfjarðarheiði í gærkvöldi til að koma ökumanni til aðstoðar eftir að hann hafði misst bíl sinn út af veginum. Ökumanninn sakaði ekki en blindbylur var á svæðinu þegar óhappið varð. Leiðangurinn gekk vel en ekki lögðu fleiri bílar á heiðina í gærkvöldi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×