Tónlist

Örfáir miðar eftir á útgáfutónleika Lay Low

Tónlisarkonan Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir betur þekkt sem Lay Low heldur útgáfutónleika í kringum frumraun sína "Please Don´t Hate Me"

í Fríkirkjunni miðvikudagskveldið 29. nóvember n.k.

Þegar þetta er skrifað eru örfáir miðar eftir á tónleikana þe. undir 50 stykkjum en Fríkirkjan tekur 400 manns í sæti.

Miðaverð er 1.500.- kr. auk miðagjalds og er selt í ónúmeruð sæti.

Fríkirkjan opnar kl. 19:30 vegna tónleikana.

Forsala fer fram í verslunum Skífunnar og á www.midi.is.

Miðasala mun ekki fara fram við hurð í Fríkirkjunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.