Innlent

Bolungarvík og Ísafjörður sameina tæknideildir

Bæjarstjórar Bolungarvíkurkaupstaðar og Ísafjarðarbæjar, þeir Grímur Atlason og Halldór Halldórsson, undirrita samning um sameiningu tæknideildanna bæjarfélaganna. Síðustu mánuði hafa staðið yfir viðræður milli um sameininguna eða samstarf um reksturinn. Viðræður bæjarstjóranna um hugsanlega fleti á frekari samstarfi halda áfram með óformlegum hætti næstu mánuði. Ómar Jónsson sveitarstjóri Súðarvíkurhrepps hefur tekið þátt í þessum viðræðum og mun gera það áfram.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×