Skoðun

Tökum þátt í forvali

Forval Vinstri grænna á höfuðborgarsvæðinu fer fram í dag. Þá veljum við þá sveit sem mun leiða framboð flokksins í þremur kjördæmum, í Suðvesturkjördæmi og Reykjavíkurkjördæmunum tveimur. Þetta er áreiðanlega í fyrsta skipti sem valið er sameiginlega á framboðslista fyrir fleiri en eitt kjördæmi utan Reykjavíkur. Hefur þessi nýbreytni vakið athygli langt út fyrir raðir flokksmanna VG og mælst vel fyrir.

Líklegt er að aðrir flokkar muni í kjölfarið feta í fótspor okkar vinstri grænna, gefist þessi leið vel. Frambjóðendur í forvalinu eru 30 talsins. Öflug sveit kvenna og karla með mismunandi bakgrunn og reynslu. Ég gef kost á mér í þessu forvali og bið um stuðning félagsmanna í 1.-2. sæti á einhverjum hinna þriggja framboðslista en kosið er um þrjá einstaklinga í hvert sæti 1.-4., alls 12 manns.

Ég tel meðal brýnustu verkefna stjórnmála næstu ára vera m.a. að byggja upp atvinnulíf sem tekur mið af hagsmunum komandi kynslóða með umhverfis- og náttúruvernd að leiðarljósi, að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda, efla almenningssamgöngur, treysta stoðir allra skólastiga og tryggja jafnrétti til náms og stórefla rannsóknir og vísindi.

Þá er nauðsynlegt að útrýma launamun kynjanna og ráða niðurlögum kynbundins ofbeldis, tryggja jafnt aðgengi allra að samfélaginu og standa vörð um eitt öflugt heilbrigðis- og velferðarkerfi fyrir alla landsmenn svo fátt eitt sé nefnt. Við vinstri græn höfum sterka málefnastöðu og sjónarmið okkar eiga vaxandi fylgi að fagna meðal landsmanna.

Þjóðin hefur fengið nóg af eyðimerkurgöngu taumlausrar stóriðjustefnu og undirlægjuháttar gagnvart erlendu herveldi sem núverandi ríkisstjórn hefur leitt. Sömuleiðis vaxandi misskiptingu í samfélaginu og niðurskurði í velferðar- og menntamálum.

Það er rík þörf á að snúa við stjórnarstefnunni og það verður einungis gert með því að núverandi ríkisstjórn verði felld og ný stjórn með sterki aðkomu vinstri grænna taki við. Í forvalinu munum við velja okkur sterka og samhenta sigursveit sem getur einmitt tekist á við núverandi ríkisstjórnarflokka og snúið við blaðinu með hagsmuni alls almennings að leiðarljósi. Með samstilltu átaki, góðum málstað og öflugri sveit frambjóðenda mun okkur takast það.

Höfundur er frambjóðandi í forvali VG á höfuðborgarsvæðinu.




Skoðun

Skoðun

Þorpið

Alina Vilhjálmsdóttir skrifar

Sjá meira


×