Innlent

Starfsmannafélög Akraness og Reykjavíkurborgar sameinast

Starfsmannafélag Akraness og Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar sameinast að óbreyttu um áramótin eftir að félagar í fyrrnefnda félaginu samþykktu sameininguna í atkvæðagreiðslu fyrir helgi. Fram kemur á vef BSRB að tæp níutíu prósent þeirra sem tóku þátt í kosningunni hafi samþykkt sameininguna. Boðað hefur verið til aukaaðalfundar á morgun þar sem lagðar verða til lagabreytingar svo sameiningin geti átt sér stað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×