Innlent

Handrukkarar á ferð?

MYND/Vísir

Tveir karlmenn eru í haldi lögreglunnar í Keflavík eftir að þeir voru handteknir þar um hálf sjö í gærkvöldi, vegna líkamsárásar. Þeir höfðu ráðist á mann fyrir utan heimili hans í bænum og leikið hann svo hart að hann var fluttur á slysadeild Landsspítalans þar sem gert var að sárum hans.

Árásarmennirnir munu ekki hafa verið ölvaðir og ber málið keim einhverskonar innheimtu eða uppgjörs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×