Eyrarsundsbrúin annar ekki umferð 14. desember 2006 15:30 Eyrarsundsbrúin milli Danmerkur og Svíþjóðar. MYND/Öresundsbroen Konsortium
Umferð um Eyrarsundsbrúna milli Danmerkur og Svíþjóðar er svo miklu meiri en gert var ráð fyrir að það horfir til vandræða. Svíar vilja skipa nýja Eyrarsundsnefnd til þess að taka á málinu. Danir hafa þegar ákveðið að bæta við vögnum sín megin frá. Í upphafi höfðu menn áhyggjur af of lítilli umferð um Eyrarsundsbrú. Í nýrri spá Eyrarsundsstofnunarinnar kemur fram að of fáar lestarferðir yfir Eyrarsund geti hægt á samþættingu á svæðinu og orðið til þess að fólk ferðist frekar í einkabílum yfir sundið í stað lesta. Sænski þingmaðurinn Lars-Ivar Ericson leggur til að skipuð verði ný Eyrarsundsnefnd. Undanfarin ár hefur samþætting við Eyrarsund aukist mikið. 14.000 manns ferðast daglega yfir Eyrarsundsbrúna til vinnu. Frá þessu er greint í danska dagblaðinu Jyllands-Posten. Þetta eru 33 prósentum fleiri en á síðasta ári. Samkvæmt spá Eyrarsundsstofnunarinnar má búast við að það muni skorta á sæti fyrir mörg þúsund lestarfarþega sem ferðast yfir brúna. Í spánni kemur fram, að þegar eru of fá sæti laus í lestunum og að árið 2010 er reiknað með að það muni vanta 3.618 sæti á leiðinni frá Málmey til Kaupmannahafnar milli kl. 06. 00 og 09.00 á morgnana. Vegna mikilla þrengsla í lestunum verður bætt við vögnum í nokkrum lestarferðum dönsku lestanna (DSB) yfir brúna frá og með 7. janúar á næsta ári.
Erlent Mest lesið Staða Sinaloa slæm eftir blóðug átök Erlent Ofbýður hvað Reykjavík er ljót Innlent Valdi dauða með aftökusveit Erlent Segir Selenskí á leið til Washington Erlent „Stjórnmálamenn í Lazy Boy bíði þess að skattgreiðendur sendi þeim peninga“ Innlent Myndband af ránstilrauninni: Ýtti ræningja með byssu burt og ýtti á neyðarhnappinn Innlent Afstýrði vopnuðu ráni í Kópavogi: „Mér fannst ég þurfa að gera eitthvað“ Innlent „Sorglegt að sjá hversu gaman þetta var fyrir þá“ Innlent Drónaframleiðsla, sprengjuleit og innviðauppbygging meðal þess sem Ísland styrkir Innlent Bað soninn um að halda sig í herberginu meðan árásin átti sér stað Innlent Fleiri fréttir Staða Sinaloa slæm eftir blóðug átök Valdi dauða með aftökusveit Segir Selenskí á leið til Washington Höktir í stuðningi til Úkraínu hjá Sameinuðu þjóðunum Franskur skurðlæknir játar svívirðileg brot á börnum Sakaður um að þiggja mútur fyrir að tala máli Rússa á Evrópuþinginu Væntanlegur kanslari segir Evrópu þurfa sjálfstæði frá Bandaríkjunum Formaður sænska Miðflokksins hættir Íhaldsmenn sigruðu en öfgahægrið náði sögulegum árangri Flestir starfsmenn USAid sendir í leyfi og 2.000 störf lögð niður Sendu skriðdreka inn á Vesturbakkann í fyrsta sinn í 23 ár Útgönguspár benda til sögulegra úrslita Tilbúinn að stíga til hliðar Páfinn sendir frá sér yfirlýsingu Þjóðverjar ganga að kjörborðinu: „Vinstrið er búið“ Hamas reiðubúin að láta af stjórn Gaza Segir Selenskí hugrakkan leiðtoga Kona sem sagðist vera Madeleine McCann handtekin Aftökur á stríðsföngum sagðar kerfisbundnar Þjóðverjar ganga til kosninga um helgina Farnir að safna matvælum vegna fyrirhugaðra tollahækkana Alríkisdómari neitar að stöðva fjöldauppsagnir Afhentu óþekkt lík í stað Shiri Bibas Dómari skaut eiginkonu sína vegna rifrildis Bandaríkjastjórn neitar að kalla Rússa „árásaraðila“ Trump fetar í fótspor Breivik Afhentu lík yngstu gíslanna sem teknir voru frá Ísrael Trump geti „algerlega“ fellt mál niður af pólitískum ástæðum Ætlar í stórfelldan niðurskurð hjá hernum Trump segir Rússa hafa öll spil á hendi Sjá meira