Viðskipti erlent

Vodafone að kaupa indverskt farsímafyrirtæki?

Farsímarisinn Vodafone er sagður vera að íhuga að leggja fram yfirtökutilboð í Hutchison Essar, fjórða stærsta farsímafélag á Indlandi. Verði af tilboðinu mun það nema 13 milljörðum punda eða tæpa 1.800 milljarða íslenskra króna, að sögn breska dagblaðsins Telegraph.

Dagblaðið segir stjórn Vodafone funda um málið í dag og geti svo farið að yfirtökutilboðið verði lagt fram á morgun.

Þá segir það indverska farsímafélagið í í eigu Hutchison Whampoa, samstæðu í eigu auðkýfingsins Li Ka-Shing, sem búsettur er í Hong Kong, en hann hefur greint frá því að fjárfestir hafi sýnt farsímafyrirtækinu áhuga.

Verði af kaupum er búist við að Vodafone fái nokkuð forskot á önnur farsímafyrirtæki sem hafa í auknum mæli horft til landa á borð við Indland þar sem farsímamarkaðurinn mun vera mettur í Evrópu.

Íbúafjöldi á Indlandi telur 1,1 milljarða manna. Þar af eru farsímanotendur 136 milljónir talsins en spáð er við að þeir verði 350 milljónir talsins eftir tæp fjögur ár. Gangi spárnar eftir er það meiri vöxtur en gert er ráð fyrir í Kína.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×