Sport

Góður sigur á Hollendingum

Anna Úrsúla Guðmundsdóttir skoraði 3 mörk fyrir íslenska liðið í kvöld
Anna Úrsúla Guðmundsdóttir skoraði 3 mörk fyrir íslenska liðið í kvöld Mynd/Vilhelm

Íslenska kvennalandsliðið í handknattleik vann í kvöld góðan 29-28 sigur á hollenska landsliðinu í Laugardalshöllinni, en þetta var fyrri æfingaleikur liðanna á tveimur dögum. Íslenska liðið átti á brattann að sækja þegar tíu mínútur voru eftir af leiknum, en náði að snúa við dæminu á lokasprettinum.

Hrafnhildur Skúladóttir var markahæst í íslenska liðinu með 10 mörk, Hanna G. Stefánsdóttir skoraði 5 mörk og þær Anna Úrsúla Guðmundsdóttir, Guðbjörg Guðmannsdóttir go Jóna Margrét Ragnarsdóttir skoruðu þrjú hver. 

Síðari leikurinn fer fram í Ásgarði í Garðabæ á morgun klukkan 17.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×