George W. Bush Bandaríkjaforseti hyggst beita neitunarvaldi gegn lögum um fósturstofnfrumur, sem Bandaríkjaþing hefur samþykkt og sent forsetanum til undirritunar.
Samkvæmt lögunum yrði heimilt að rannsaka stofnfrumur, svo fremi sem þær væru fengnar úr fósturvísum sem verða til við frjósemisaðgerðir og hefði hvort eð er verið hent í ruslið. Bush beitir neitunarvaldi sínu nú í fyrsta sinn, en forverar hans í embætti beittu því sumir hverjir oft og mörgum sinnum.