Lífið

Námskeið fyrir unga ökumenn

Einar Guðmundsson forstöðumaður Forvarnahússins, og Birgir Hákonarson framkvæmdarstjóri umferðaröryggissviðs Umferðarstofu.
Einar Guðmundsson forstöðumaður Forvarnahússins, og Birgir Hákonarson framkvæmdarstjóri umferðaröryggissviðs Umferðarstofu.

Umferðarstofa og Sjóvá Forvarnahúsið hafa gert samastarfssamning um að endurvekja námskeið ungra ökumanna sem Sjóvá hefur staðið fyrir s.l. níu ár. Ljóst er að mikil þörf er á markvissri fræðslu meðal ungra ökumanna, sérstaklega með tilliti til þess hve mikið hefur verið um hraðakstur að undanförnu.

Markhópurinn

Umferðarstofa og Forvarnahúsið hafa leitað eftir samstarfi við framhaldsskóla landsins og hafa margir þeirra þegar svarað að þeir vilji samstarf enda um mikilvægt málefni að ræða sem snertir ekki síst skólaumhverfið. Markhópurinn er aðallega 17-20 ára ökumenn þótt aðrir hópar séu einnig velkomnir. Aðalatriðið er að þátttakendur hafi öðlast einhverja reynslu við akstur, því námskeiðin byggjast á því að þátttekendur geti heimfært fræðsluna á eigin reynslu.

Þessum aldurshópi mun gefast kostur á að sækja námskeið á þeim stöðum um landið þar sem framhaldsskólar eru staðsettir.

Efnistök

Námskeiðin sem eru létt og skemmtileg, eru um 5 klst. löng og er mikið lagt upp úr að þátttakendur geri sér grein fyrir eigin kostum og göllum í umferðinni og hve lítið þarf til þegar mistök verða að illa fari. Þau byggja á stuttum fræðsluerindum, verkefnavinnu og upplifunum af ýmsu tagi.

Árangurinn

Þau 9 ár sem þessi námskeið hafa verið haldin, hefur verið fylgst náið með þátttakendum og árangur mældur.

Komið hefur í ljós að veruleg tjónafækkun er í aldurshópnum eða allt að þrefallt lægri tjónatíðni eftir námskeiðin. Á þessum 9 árum hafa um 5000 tjón sparast hjá námskeiðshópnum og komið í veg fyrir ekki færri en 1100 slys á fólki. Það er ljóst að samfélagssparnaðurinn af þessum námskeiðum er verulegur auk þeirra þjáninga sem hvert slys veldur.

Ávinningur hópsins

Aðalávinningurinn er að hópurinn sem fer á þessi námskeið lendir í færri tjónum og þau tjón sem þó verða, eru að meðaltali ekki eins alvarleg og minna um slys. Fyrir bragðið er hægt að bjóða upp á lægri tryggingar fyrir hópinn og hefur náðst samkomulag við Sjóvá um slíkt.

Fyrstu námskeiðin verða um næstu helgi, á Sauðárkróki laugardaginn 14. okt kl. 11 í Framhaldsskólanum og á sunnudag verður námskeið á Akureyri í Verkmenntaskólanum kl. 11. Fyrsta námskeiðið í Reykjavík verður mánudaginn 23. október kl. 17 í Forvarnahúsinu í Kringlunni 1.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.