Innlent

Verktakar gæti eigna NATO

Utanríkisráðuneytið hefur auglýst eftir verktökum, fyrir hönd Bandaríkjahers, til að annast viðhald og eftirlit með eignum Atlantshafsbandalagsins á Keflavíkurflugvelli, eftir að herlið Bandaríkjanna fer frá landinu í haust. Þó hefur ekki verið óskað eftir eftirliti með eigum sjálfs herliðsins.

Bandaríski herinn er skuldbundinn NATO að viðhalda eignum þess í eitt ár eftir brottför, en flestar eru eignirnar hernaðarmannvirki. Herinn sjálfur á veitukerfi, þjónustubyggingar, skóla, íþróttahús, heilsugæslu og skrifstofuhúsnæði. Enn er óljóst um ráðstöfun þeirra mannvirkja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×