Innlent

Búið að fella 27 tarfa

 Hreindýraveiði hófst 15. júlí síðastliðinn. Átta tarfar voru felldir fyrsta veiðidaginn og þóttu dýrin þokkalega á sig komin. Í gær höfðu 27 tarfar verið felldir.

Aldrei hefur verið úthlutað jafn mörgum hreindýraveiðileyfum og í ár; 909 talsins. Leiðsögumenn hreindýraveiðimanna eru um áttatíu.

Í fyrstu er aðeins leyfilegt að veiða tarfa en veiðar á hreinkúm, og kálfum sem fylgja þeim, hefjast 1. ágúst næstkomandi. Veiðitímabilinu lýkur 15. september.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×