Tónlist

Plata Dylans valin best

Nýjasta plata Bob Dylan var valin sú besta á árinu af Rolling Stone.
Nýjasta plata Bob Dylan var valin sú besta á árinu af Rolling Stone.

Fyrsta plata Bob Dylan í fimm ár, Modern Times, er besta plata ársins að mati tónlistartímaritsins Rolling Stone.

Í tímaritinu kemur fram að Dylan hafi ekki hljómað svona ferskur síðan á hinni vanmetnu plötu John Wesley Harding frá árinu 1968. Í öðru sæti lenti hin tvöfalda Stadium Arcadium með Red Hot Chili Peppers og í því þriðja varð Rather Ripped með Sonic Youth.

Crazy með Gnarls Barkley var valið besta smáskífulagið. Í öðru sæti varð Steady as She Goes með The Raconteurs.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.