Innlent

Mótmæla fyrirhuguðum byggingum í Höfðatorgsreitnum

Íbúar í Túnahverfi í Reykjavík mótmæla byggingum sem áætlað er að rísi samkvæmt deiliskipulagi Höfðatorgsreitsins. Yfir tvö hundruð manns hafa skrifað undir undirskriftalista þess efnis. Hópurinn fer fram á að gert verið umhverfismat á deiliskipulaginu. Íbúarnir segja fyrirhugaðar byggingar hafa mikil áhrif á þá sem búa nú þegar á svæðinu en meðal annars á að reisa sextán hæða turn sem skyggir á hús sem fyrir eru.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×