Innlent

Átta fluttir á slysadeild

Átta manns voru fluttir á slysadeild Landsspítalans-háskólasjúkrahúss eftir bílslys sem varð á Suðurlandsvegi rétt eftir klukkan sex í kvöld. Enginn er í bráðri lífshættu en einn er nokkuð slasaður. Aðrir virðast með minniháttar áverka en verið er að rannsaka áverka fólksins.

Svo virðist sem að bíll sem kom úr austur átt hafi farið inná öfugan vegar helming og lent framan á bíl sem kom akandi úr gagnstæðri átt. Þriðji bíllinn keyrði svo útaf til að forðast árekstur. Tveir bílanna eru mikið skemmdir og klippa þurfti ökumenn úr þeim.

Mikil umferðarteppa myndaðist á meðan lögregla og sjúkaralið voru að störfum á vettvangi en hefur vegurinn verið opnaður á ný.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×