Innlent

Clinton, Blair og Annan á karlaráðstefnu?

Frá fundi Tonys Blair, forsætisráðherra Bretlands, og Halldórs Ásgrímssonar fyrr í dag.
Frá fundi Tonys Blair, forsætisráðherra Bretlands, og Halldórs Ásgrímssonar fyrr í dag. MYND/AP

Árni Magnússon félagsmálaráðherra hefur boðið þremur af leiðtogum heimsins til alþjóðlegrar karlaráðstefnu um jafnréttismál sem haldin verður hér á landi í haust. Svör frá leiðtogunum hafa ekki borist en ráðherrann mun kynna ráðstefnuna á fundi Sameinuðu þjóðanna í næstu viku.

Ráðstefnan kemur í framhaldi af karlaráðstefnu um sem haldin var hér á landi 1. desember síðastliðinn en þá lýsti félagsmálaráðherra því yfir að hann hygðist stefna hingað körlum heimsins til þess að ræða jafnréttismál. Undirbúningur ráðstefnunnar er langt á veg komin og verður hún haldin í september, en nákvæm tímasetning og fundarstaður hafa ekki verið ákveðinn.

Ráðherra hefur skrifað þremur valinkunnum leiðtogum á alþjóðavettvangi bréf og boðið þeim á ráðstefnuna. Þetta eru Bill Clinton, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, og Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna.

Aðspurður hvenær svara sé að vænta frá leiðtogunum segir Árni að það verði að koma í ljós. Þeir hafi sinn tíma til að svara því og dagskrá þeirra sé þétt og hann viti ekki hversu miklar vonir menn eigi að gefa sér en hann vonist til þess að einhver þeirra þiggi boðið og stjórnvöldum takist að gera ráðstefnuna sýnilega því þetta snúist um það að þjóðir heimsins átti sig á því að jafnréttismál séu ekki síður mál karla en kvenna.

Aðspurður hvort fleiri heimsþekktum leiðtogum verði boðið segir Árni að það verði að koma í ljós. Hann hafi greint norrænum starfsbræðrum sínum frá því að hann hafi áhuga á að efna til ráðstefnunnar og þá muni hann einnig segja frá henni á þingi Sameinuðu þjóðanna í næstu viku. Hann vonist því til að þetta njóti nokkurrar athygli.

Ljóst er að ef leiðtogarnir þrír koma hingað til lands þarf að hafa töluverðan öryggisviðbúnað í tengslum við ráðstefnuna. Árni segir að tekið verði á því máli ef leiðtogarnir boði komu sína.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×