Sport

Robben fær fjögurra leikja bann

Arjen Robben þarf að taka út fjögurra leikja bann
Arjen Robben þarf að taka út fjögurra leikja bann NordicPhotos/GettyImages

Áfrýjun Chelsea á rauða spjaldið sem Arjen Robben fékk að líta gegn West Brom um síðustu helgi hefur verið vísað frá af aganefnd enska knattspyrnusambandsins og fer leikmaðurinn því tafarlaust í fjögurra leikja bann. Leikbann í kjölfar rauðs spjalds er að jafnaði þrír leikir, en Robben fær einn til vegna þess að þetta er annað rauða spjaldið sem hann fær á leiktíðinni.

Hann missir því af deildarleikjum gegn Tottenham, Manchester City og Fulham, auk undanúrslitaleiksins í enska bikarnum gegn Newcastle.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×