Handknattleiksdeild Vals hefur sent frá sér tilkynningu á heimasíðu
sinni þar sem fram kemur að Óskar Bjarni Óskarsson muni halda áfram að
þjálfa liðið á næstu leiktíð og sé reiðubúinn að skrifa undir nýjan
tveggja ára samning. Þá hefur félagið náð samkomulagi við hornamanninn
Baldvin Þorsteinsson um að framlengja samning hans um tvö ár.
Óskar áfram með Val
![Óskar Bjarni verður áfram þjálfari karlaliðs Vals í handboltanum](https://www.visir.is/i/9A45144944C75569819DEF3266EA6A23AEC46581A840824844A63E4FBCAA039F_713x0.jpg)