Handbolti

Akureyri lagði Val

Akureyri lagði Fylki
Akureyri lagði Fylki mynd/anton brink

Akureyri gerði sér lítið fyrir og lagði topplið Vals í DHL-deild karla í handbolta í dag 25-22. Goran Gusic skoraði 8 mörk fyrir Akureyri en þeir Ingvar Árnason og Baldvin Þorsteinsson skoruðu 4 hvor fyrir Val.

Þá vann HK dramatískan sigur á Fylki í Árbænum 34-33 þar sem sigurmark Kópavogsliðsins kom úr umdeildu vítakasti þegar leiktíminn var liðinn. Valdimar Þórsson skoraði 13 mörk í leiknum, þar af 5 síðustu mörk HK liðsins og sigurmarkið úr vítakastinu. Ásbjörn Stefánsson skoraði 8 mörk úr 8 skotum fyrir Fylki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×