Erlent

Hörð átök í Austur-Kongó

Óeirðalögreglumenn í viðbragðsstöðu í Kinshasha, höfuðborg Austur-Kongó, í dag eftir að kjörstjórn í landinu lýsti í morgun Joseph Kabila sigurvegar í annarri umferð forsetakosninga sem haldnar voru í síðasta mánuði. Andstæðingur hans, Jean-Pierre Bemba, fyrrverandi leiðtogi uppreisnarmanna, játar sig ekki sigraðan.
Óeirðalögreglumenn í viðbragðsstöðu í Kinshasha, höfuðborg Austur-Kongó, í dag eftir að kjörstjórn í landinu lýsti í morgun Joseph Kabila sigurvegar í annarri umferð forsetakosninga sem haldnar voru í síðasta mánuði. Andstæðingur hans, Jean-Pierre Bemba, fyrrverandi leiðtogi uppreisnarmanna, játar sig ekki sigraðan. MYND/AP

Til harðra átaka hefur komið milli stjórnarandstæðinga og lögreglu í höfuðborg Austur-Kongó í dag. Kjörstjórn landsins lýsti því yfir í morgun að Joseph Kabila, sitjandi forseti, hefði sigrað í kosningum í síðasta mánuði. Andstæðingur hans neitar að viðurkenna ósigur sinn og segir brögð hafa verið í tafli.

Samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðu kjörstjórnar hlaut Kabila rúm fimmtíu og átta prósent atkvæða en Jean-Pierre Bemba, fyrrverandi leiðtogi uppreisnarmanna, tæplega fjörutíu og tvö prósent. Endanlegar tölur verða birtar á laugardaginn og síðan staðfestir Hæstiréttur úrslitin.

Kabila hefur beðið landa sína um að sýna stillingu. Bemba játar sig hins vegar ekki sigraðan og segir niðurstöðuna langt frá því endurspegla vilja þjóðarinnar og ekki í samræmi við það sem hafi verið að finna í kjörkössum eftir kosningarnar.

Fjölgað var í hópi alþjóðlegra friðargæsluliða í höfuðborginni, Kinshasha, en þrátt fyrir það sauð upp úr í dag. Borgin er höfuðvígi Bemba og létu stuðningsmenn hans grjóti rigna yfir bandamenn Kabila. Lögreglan svaraði að mikilli hörku og náðust myndir af því þegar lögreglumenn afklæddu unga konu og beittu hana ofbeldi.

Vonir höfðu verið bundnar við að sættir tækjust í landinu eftir kosningarnar, þær fyrstu í Austur-Kongó í rúma fjóra áratugi. Laurent Kabila, faðir núverandi forseta, kom einræðisherranum Mobutu Sese Seko frá völdum árið 1997. Kabila eldri var síðan ráðinn af dögum 2001. Ári síðar var samið um vopnahlé í landinu og var litið á kosningarnar í ár sem endahnútinn á því ferli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×