Innlent

Engar breytingar á hlutverki Íbúðalánasjóðs á þessu kjörtímabili

Tryggja á jafnræði í húsnæðismálum hvar sem er á landinu.
Tryggja á jafnræði í húsnæðismálum hvar sem er á landinu. MYND/NM

Engar breytingar verða gerðar á hlutverki Íbúðalánasjóðs á þessu kjörtímabili, aðrar en að laga stöðu sjóðsins að ríkisstyrkjareglum EES-samningsins og hugsanlega til að fara eftir tillögum stýrihóps um málefni Íbúðalánasjóðs.

Þetta kom fram í ræðu Magnúsar Stefánssonar, félagsmálaráðherra, á ársfundi ASÍ í gær. Ráðherra sagði að stefnan væri að tryggja landsmönnum áfram jafnræði í húsnæðismálum hvar sem væri á landinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×