Bíó og sjónvarp

Justin í nýrri mynd Myers

Popparinn Justin Timberlake hefur bæst við leikaralið myndarinnar The Love Guru.
Popparinn Justin Timberlake hefur bæst við leikaralið myndarinnar The Love Guru.

Popparinn Justin Timberlake hefur bæst í leikarahóp nýjustu myndar Mike Myers, The Love Guru. Timberlake og Myers hafa áður unnið saman við talsetningu þriðju myndarinnar um tröllið Shrek.

Myers er aðstoðarframleiðandi myndarinnar, sem fjallar um mann sem var alinn upp af gúrúum og gerist hjónabandsráðgjafi. Á meðal fleiri leikara verða Jessica Alba, Romany Malco og dvergurinn Verne Troyer, sem lék Mini Me í Austin Powers-myndunum. Tökur á myndinni hefjast í næsta mánuði í Toronto.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×