Tónlist

Slátur í Fríkirkjunni

Miðvikudaginn 3. janúar mun tónsmíðafélagið S.L.Á.T.U.R. halda lúðratónleika í Fríkirkjunni klukkan 20. Saman er kominn hópur frumkvöðla í ný-sensjúalískum tónsmíðum.

Um er að ræða 6 manna hóp flytjenda er leika á lúðra en tveir af þeim eiga einnig verk á tónleikunum. Flutt verður ný tónlist eftir Áka Ásgeirsson, Benedikt Hermann Hermannsson, Guðmund Stein Gunnarsson, Inga Garðar Erlendsson, Maríu Huld Markan Sigfúsdóttur og Pál Ivan Pálsson. Tónlistin er bæði framsækin og ómfögur, ágeng en vinaleg.

Flytjendur eru Áki Ásgeirsson, Eiríkur Orri Ólafsson, Helgi Hrafn Jónsson, Ingi Garðar Erlendsson, Sigurður Már Valsson og Sturlaugur Björnsson. Öll verkin eru einungis fyrir málmblásturshljóðfæri svo sem trompeta, básúnur, horn og túbu.

S.L.Á.T.U.R. stendur fyrir Samtök listrænt ágengra tónsmiða umhverfis Reykjavík og eru samtökin eldri en marga grunar. Um er að ræða hóp ungra og ágengra tónskálda sem staðið hafa fyrir ýmsum uppákomum, árlegri sumarsólstöðuhátíð auk ýmissa uppákoma í húsnæði félagsins að Hverfisgötu 32.

Löng hefð hefur skapast hér á landi og víðar fyrir lúðratónleikum í kringum nýár. Þátttakendur hafa sína persónulegu sýn á viðfangsefnið sem kann að koma nýstárlega fyrir sjónir oft á tíðum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.