Handbolti

Hefna bikarmeistarnir?

Hanna Guðrún Stefánsdóttir skoraði aðeins eitt mark gegn Stjörnunni á laugardaginn.
Hanna Guðrún Stefánsdóttir skoraði aðeins eitt mark gegn Stjörnunni á laugardaginn. Fréttablaðið/Daníel

Stórleikur átta liða úrslita bikarkeppni kvenna í handbolta fer fram á Ásvöllum í kvöld þegar bikarmeistarar Hauka taka á móti Stjörnunni. Þetta verður annar leikur liðanna á fimm dögum en Stjarnan vann deildarleik liðanna í Ásgarði með sex marka mun á laugardaginn, 21-15.

Nú er að sjá hvort Haukastúlkurnar ná að hefna fyrir tapið en þrír lykilmenn liðsins, Ramune Pekarskyte, Hanna Guðrún Stefánsdóttir og Sandra Stojkovic, skoruðu aðeins 9 mörk úr 24 skotum í leiknum á laugardaginn en höfðu skorað saman 18,3 mörk að meðaltali í leik í vetur. Spurning hvort Haukastúlkur hafi fundið leiðina frá hjá hinni sterku 3:2:1 vörn Stjörnunnar.- óój




Fleiri fréttir

Sjá meira


×