Skoðun

Hefjum merkið á loft

Guðni Ágústsson skrifar
Framsóknarflokkurinn getur borið höfuðið hátt eftir störf sín í ríkisstjórn undanfarin 12 ár. Þegar við settumst í ríkisstjórn voru hér 12-14.000 manns án atvinnu, fjöldi manna var að missa heimili sín. Margir leituðu til annarra landa eftir atvinnu. Nú er þannig um að litast í þjóðfélaginu að hér er bjartsýni og uppgangur á öllum sviðum, allir hafa atvinnu og við höfum þurft að kalla til 12.-14.000 erlenda verkamenn að taka þátt í því mikla uppbyggingarstarfi sem hér fer fram. Þjóðin veit að ríkisstjórnin hefur unnið gott starf í hennar þágu. Ný skoðanakönnun Capacent sýnir að 33% landsmanna segjast sannfærðir um að lífskjör þeirra muni batna á þessu ári frá því sem verið hefur.

Sá árangur sem náðst hefur í þessu ríkisstjórnarsamstarfi í atvinnumálum og efnahagsmálum er engin tilviljun. Hann á sér meðal annars skýringu í grundvallaráherslum Framsóknarflokksins. Framsóknarflokkurinn á sér gríðarlega merka sögu, sem er nátengd framfarasókn íslensku þjóðarinnar á öllum sviðum í 90 ár. Við stofnun flokksins var íslenska þjóðin ein sú fátækasta í álfunni, nú er hún ein hin efnaðasta og lífskjör hér eru öðrum þjóðum öfundarefni.

Í sögu sinni hefur Framsóknarflokkurinn átt þátt í framgangi allra stærstu hagsmunamála íslensku þjóðarnnar. Það er staðreynd, sem ekki fer hátt í umræðunni í samtímanum, að Framsóknarflokkurinn hefur ávallt verið í fremstu röð í baráttu fyrir umhverfis- og náttúruvernd í íslenskum stjórnmálum, allt frá dögum Eysteins Jónssonar. Ást og virðing fyrir landinu og náttúru þess er og verið meginstoð í stefnu Framsóknarflokksins, undir okkar stjórn er nú unnið að stofnun stærsta þjóðgarðs í Evrópu á Vatnajökulssvæðinu og undir okkar stjórn er nú leitað sáttar um stækkun friðlandsins í Þjórsárverum.

Íslenskt samfélag á að vera gott samfélag. Við eigum mörg verk óunnin. Við eigum að leggja af mörkum til heilbrigðismála og menntamála. Áfangi á þeirri leið er sá samningur sem nýlega var gerður og kveður á um að 27 milljörðum króna verði varið í leiðréttingar og kjarabætur til aldraðra á næstu árum. Sá samningur er lýsandi fyrir áherslur framsóknarmanna. Við viljum standa þannig að verki að stækka kökuna með öflugu atvinnulífi og tryggja síðan að afraksturinn skili sér til allra landsmanna, ekki síst þeirra sem búa við lökust kjörin.

Í dag, laugardag, göngum við til prófkjörs framsóknarmenn í Suðurkjördæmi. Þátttaka er heimil öllum þeim sem skráðir eru í flokksfélögin í kjördæminu. Nýir félagar geta gengið til liðs við flokkinn á kjörstað. Ég hvet alla framsóknarmenn í kjördæminu til þátttöku í prófkjörinu. Ég býð mig þar fram til forystu og sækist eftir endurnýjuðu umboði í 1. sæti framboðslistans. Ég heiti á framsóknarmenn að taka höndum saman um að hefja merki flokksins hátt á loft í þeirri baráttu sem framundan er vegna alþingiskosninganna 12. maí í vor.

Höfundur er landbúnaðarráðherra.




Skoðun

Skoðun

Þöggun

Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir,Margrét Kristín Blöndal,Margrét Rut Eddudóttir,Lukka Sigurðardóttir,Sigtryggur Ari Jóhannsson,Halldóra Jóhanna Hafsteins Âû skrifar

Sjá meira


×