Tónlist

Kurt býr til homma

Rokksveitin Nirvana getur gert fólk samkynhneigt að mati meðlims Love God‘s Way.
Rokksveitin Nirvana getur gert fólk samkynhneigt að mati meðlims Love God‘s Way.

Samkvæmt Donnie Davis, meðlimi bandaríska sértrúarsafnaðarins Love God's Way, getur fólk orðið samkynhneigt á því að hlusta á hljómsveitir á borð við Nirvana, The Doors og Wilco.

Tónlistarmaðurinn Elton John er talinn stórhættulegur.

Davis varar við þessu á heimasíðu sinni www.lovegodsway.org og sjálfur segist hann hafa „læknast" af samkynhneigð. Heldur hann því fram að Guð hati samkynhneigða og hefur sett saman lista af tónlistarmönnum og hljómsveitum sem kristnar fjölskyldur eiga að forðast eins og heitan eldinn.

 

cindy lauper Talið er „öruggt“ fyrir fólk að hlusta á bandarísku söngkonuna Cyndi Lauper.

Auk ofantaldra sveita eru á listanum Scissor Sisters, Erasure, Queen og Elton John, sem telst vera sérstaklega varhugaverður. Rapparinn Jay-Z, Ravi Shankar og Velvet Underground komast einnig á listann. Á meðal þeirra listamanna sem Davis telur „öruggt" að hlusta á er Cyndi Lauper.



 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.