Bryan Lee, framkvæmdastjóri afþreyingardeildar bandaríska hugbúnaðarrisans Microsoft, hefur sagt upp störfum. Lee var í forsvari deildar sem hafði umsjón með þróun og sölu á Zune-spilaranum sem kom á markað um miðjan nóvember í fyrra.
Lee kom til starfa hjá Microsoft árið 2000 og vann meðal annars að markaðssetningu Xbox-leikjatölvunnar.
Forsvarsmenn Micro-soft segja brotthvarf Lees vera af persónulegum ástæðum og í engum tengslum við að sala á Zune-spilaranum hafi verið talsvert undir væntingum.
Microsoft batt miklar vonir við Zune-spilarann, sem etja átti kappi við iPod-spilarann frá Apple. Þær vonir hafa ekki ræst enda hefur Microsoft einungis nælt sér í um 10 prósenta sneið af bandaríska markaðnum en Apple trónir á toppnum með 85 prósenta markaðshlutdeild.
Að sögn greinanda hjá bandaríska markaðsrannsóknafyrirtækinu Gartner byrjaði salan á Zune-spilurunum vel og lofaði hún góðu áður en hún fór að dala hratt.
Microsoft horfir engu að síður björtum augum á framtíðina og horfir til þess að selja allt að eina milljón spilara fyrir lok júní í sumar.