Tónlist

Tugmilljóna samningur Silvíu og Frímanns

Jakob Frímann skrifar á morgun undir stærsta hljómplötusamning Íslandssögunnar.
Jakob Frímann skrifar á morgun undir stærsta hljómplötusamning Íslandssögunnar.

„Já, við erum að bjóða til veislu í hvalveiðiskipinu Eldingu í dag. Með kampavínsglas í annarri og hvalrengi í hinni,” segir Jakob Frímann Magnússon hljómplötuútgefeandi með meiru. Klukkan ellefu í dag siglir hvalveiðiskip úr Reykjavíkurhöfn með frítt föruneyti.

En þá stendur til að undirrita stærsta hljómplötusamning Íslandssögunnar hvorki meira né minna milli Silvíu Nóttar og Reykjavík Records en þar fer Jakob fyrir. Hann segir samninginn skipta tugum milljónum króna. Til stendur að dreifa nýrri hljómplötu hennar um heim allan og kostar slík markaðssetning þetta ef vel á að vera.

Að baki Reykjavík Records standa mörg helstu athafnaskáld Íslands í bland við fjárfestingafélög í eigu Straums - Burðaráss, Brú Venture Capital og fleiri. Stjórnarformaður er Tryggvi Jónsson sem jafnframt stýrir útrásarsjóð FL Group, Tónvís.

„Tiltrú manna á Silvíu og teymi hennar er með þeim hætti að menn telja hana einhverja glæsilegustu súperstjörnu sem lýðveldið hefur alið. Með munninn svo kirfilega fyrir neðan nefið að jafnvel Borat fölnar í samanburði þegar best lætur,” segir Jakob og dregur hvergi úr.

Aðspurður segist Jakob ekki hafa hinar minnstu áhyggjur af því þó að Silvía hafi farið flatt í Eurovision-keppninni fyrir ári úti í Grikklandi.

Segir engan óbarinn biskup. Jakob hefur vitanlega hlustað á hina nýju plötu og segir hana meistaraverk af bestu gerð. „Eigum við ekki að segja að þar sem Sölvi Blöndal sitji við settið þá sitji tónlistin vel í sjálfu sér. Og hin ómþýða rödd Silvíu Nætur framkallar léttan silkihroll.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.