Innlent

Dansað við dáta í Bankastræti

Hópur Íslendinga og vopnabræður okkar úr Atlantshafsbandalaginu lentu í átökum í Bankastræti í gærkvöldi sem lauk með því að Íslendingur beit einn dátann svo harkalega í eyrað að flytja þurfti hann á Slysadeild til að gera að sárinu.

Ekki liggur fyrir hver kveikjan að átökunum var en íslenskum körlum hefur lengi verið í nöp við erlenda dáta sem renna íslenskar blómarósir hýru auga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×