Viðskipti erlent

Forstjórinn farinn

Jón Aðalsteinn Bergsveinsson skrifar
Nick Staggs, forstjóri Landsbankans í Lundúnum, Sigurjón Þ. Árnason, bankastjóri Landsbankans, og Jim Renwick, fyrrverandi forstjóri Bridgewell.
Nick Staggs, forstjóri Landsbankans í Lundúnum, Sigurjón Þ. Árnason, bankastjóri Landsbankans, og Jim Renwick, fyrrverandi forstjóri Bridgewell.

Breskir fjölmiðlar segja marga farna frá Landsbankanum í Bretlandi. Bankastjórinn segir eðlilegar skýringar á málinu.  

Fjöldi starfsfólks breska fjármála- og verðbréfafyrirtækisins Bridgewell, hefur látið af störfum eftir að Landsbankinn keypti fyrirtækið í maí síðastliðnum. Þar á meðal eru nokkrir af æðstu stjórnendum fyrirtækisins, svo sem Jim Renwick, fyrrverandi forstjóri Bridgewell, sem tók poka sinn á föstudag í síðustu viku. Renwick átti veiga­mikinn þátt í sölunni á fyrirtækinu og er sagður hafa fundað hér á landi ásamt bankastjórum Landsbankans áður en greint var frá kaupunum opinberlega.

Sigur­jón Þ. Árnason, bankastjóri Landsbankans, segir að upphaflega hafi ekki verið gert ráð fyrir því að Renwick myndi hætta en það hafi verið óhjákvæmilegt þegar á leið.

Breska blaðið Financial News segir fjórðung starfsfólks Bridgewell, eða 27, hafa hætt störfum og megi reikna með að fleiri starfsmenn muni hugsa sér til hreyfings á næstunni. Sigurjón segir fréttirnar ýktar en að tölurnar séu allt of lágar: „Það eru örugglega miklu fleiri starfsmenn sem hafa hætt, þeir eru nær því að vera um áttatíu,“ segir hann og bendir á að skurkur í starfsmannahaldi eigi sér eðlilegar skýringar.

Landsbankinn hefur í kjölfar kaupanna á Bridgewell, sem lauk í ágúst, sameinað fyrirtækið og Teather & Greenwood í eina sæng en saman mynda þau Landsbanki Securities (UK) Ltd, verðbréfadeild Landsbankans í Bretlandi.

Nick Stagg, forstjóri Landsbankans í Lundúnum, sagði í samtali við Markaðinn í síðustu viku að fréttir um fólksflótta úr herbúðum fyrirtækisins væru stórlega ýktar í breskum fjölmiðlum. Þar var því haldið fram að fjöldi fyrrverandi starfsfólks Bridgewell hefði hætt eftir að Landsbankinn í London hefði lokið við að taka félagið yfir í ágúst. Boð um háan bónus hefði ekki nægt til að halda fólkinu í starfi.

Sigurjón segir að gert hafi verið ráð fyrir því að einhverjum yrði sagt upp hjá Bridgewell vegna samþættingarinnar og hafi starfslokasamningar verið gerðir við marga vegna þessa. „Saman voru þetta fyrirtæki með um þrjú hundruð starfsmenn sem við þurftum að sameina í eitt fyrirtæki með um 220 til 230 manns. Í því felst auðvitað að um sjötíu til áttatíu manns verða að hætta,“ segir Sigur­jón og bendir á að fjölda fólks hafi verið sagt upp. „Það er fullkomnlega eðlilegt.“

Sex starfsmenn Bridgewell hættu í kjölfarið sem ekki var reiknað með að myndu hugsa sér til hreyfings, að sögn Sigurjóns. „Við sjáum sérstaklega eftir tveimur en þeir fóru yfir til keppinauta okkar. Hinir fóru að gera eitthvað allt annað,“ segir hann.

Í tilkynningu til Kauphallar Íslands í maí 2007 segir í frétt frá Landsbankanum að Jim Renwick verði næstráðandi í Landsbankanum í London eftir kaupin á Bridgewell. Stjórnendur Bridgewell og lykilstarfsmenn hafi skuldbundið sig til áframhaldandi starfa í sameinuði fyrirtæki.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×