Viðskipti erlent

Óbreyttir stýrivextir í Japan

Toshihiko Fukui, bankastjóri japanska seðlabankans.
Toshihiko Fukui, bankastjóri japanska seðlabankans. Mynd/AFP

Japanski seðlabankinn ákvað í dag að halda stýrivöxtum óbreyttum í 0,5 prósentum. Í rökstuðningi bankastjórnarinnar koma fram áhyggjur vegna fjármálakrísunnar á alþjóðlegum hlutabréfamörkuðum og hægari hagvöxtur í Bandaríkjunum sem gæti skilað sér í minni útflutningi frá Japan til Bandaríkjanna.

Að sögn fréttastofu Associated Press var voru átta af níu meðlimum peningamálanefndar bankans fylgjandi óbreyttu stýrivaxtastigi en hefur eftir Toshihiko Fukui, seðlabankastjóra, að bankinn muni fylgjast grannt með hagvísum um heim allan.

„Ef fasteignavandinn eykst í Bandaríkjunum, sem muni hafa neikvæð áhrif á einkaneyslu þar í landi gæti það haft neikvæðar afleiðingar fyrir japanskt efnahagslíf," sagði Fukui.

Japanski seðlabankinn hækkaði stýrivexti síðast um 25 punkta í febrúar. Það var önnur vaxtahækkun bankans í sjö ár.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×