Innlent

Yngsti vímuefnaneytandinn átta ára

Götusmiðjan er nú á undanþágu frá heilbrigðiseftirlitinu vegna lélegs húsakosts. Hér sjást Bragi Guðbrandsson, forstöðumaður Barnastofu, til vinstri, og Mummi, til hægri, huga að húsnæðismálum smiðjunnar.
Götusmiðjan er nú á undanþágu frá heilbrigðiseftirlitinu vegna lélegs húsakosts. Hér sjást Bragi Guðbrandsson, forstöðumaður Barnastofu, til vinstri, og Mummi, til hægri, huga að húsnæðismálum smiðjunnar.

Ungmenni sem dvöldu í Götusmiðjunni á síðasta ári voru allt niður í tíu ára þegar þau hófu að neyta vímuefna. Yngsti aldur er neysla hófst var átta ár. Þetta kemur fram í nýútkominni ársskýrslu Götusmiðjunnar fyrir árið 2006.

Guðmundur Týr Þórarinsson, Mummi í Götusmiðjunni, segir síðasta ár hafa einkennst af erfiðleikum varðandi fjármál, starfsmannamál og húsnæðismál.

„Húsakosturinn á Akurhóli er kominn í niðurníðslu, þök leka, svo og lagnir og gluggar, sem eru bæði fúnir og jafnvel óopnanlegir. Starfsemin hefur verið á undanþágu frá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands frá árinu 2005.

Mjög erfitt er að fá hæft fagfólk til að starfa á þessu landssvæði og svo er ímynd þess hóps sem Götusmiðjan vinnur með oft neikvæð, sem vissulega hefur þó lagast.“

Varðandi fjárhagsvandann segir Mummi að það þreyti starfsemina að þurfa að útvega 20 prósent af rekstrarkostnaði árlega með því að afla styrkja og vera með fjár­safnanir til að halda Götusmiðjunni gangandi. Hann bendir á mikilvægi þess að meðferðin beri árangur í fyrsta skipti, því rannsóknir sýni að því oftar sem fólk fari í meðferð, þeim mun vonlausara verði það um að ná árangri til frambúðar.

Fréttablaðið greindi frá því í síðustu viku að til athugunar væri að Götusmiðjan fengi húsnæðið að Efri-Brú, sem nú stendur autt. Mummi kveðst sjálfur fremur horfa til Arnarholts á Kjalarnesi, sem einnig stendur autt. Hann telur að með þeirri ráðstöfun sé auðveldara að fá hæft fagfólk, því stutt sé að sækja vinnu þangað frá höfuðborgarsvæðinu. Stöðugildi Götusmiðjunnar eru nú 14 talsins og dreifast þau á 17 starfsmenn.

Mummi leggur áherslu á að starfs­andi sé með ágætum í smiðjunni, enda byggi meðferðin á hugmyndafræði þar sem áhersla sé lögð á ræktun jákvæðra tilfinninga og því að bera virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum. Aldrei hafi komið upp líkamleg ofbeldisverk milli ungmennanna og starfsfólks frá stofnun smiðjunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×