Tónlist

Pétur og úlfurinn gefinn út

Hljómsveitina skipa þeir Ragnar Jún Ragnarsson, Helgi Egilsson, Snorri Páll Úlfhildarson Jónsson og Halldór Ásgeirsson.
Hljómsveitina skipa þeir Ragnar Jún Ragnarsson, Helgi Egilsson, Snorri Páll Úlfhildarson Jónsson og Halldór Ásgeirsson.

Hafnfirska hljómsveitin Alræði öreiganna heldur útgáfutónleika í Þjóðleikhúskjallaranum í kvöld í tilefni af útkomu plötunnar Pétur og úlfurinn, sem er byggð á hinu þekkta tónverki eftir Sergei Prokofiev.

Hljómsveitin setti verkið fyrst upp í eigin rokk-fjúsjón útgáfu á Björtum dögum í Hafnarfirði í fyrra.

Tókst sýningin svo vel að ákveðið var að taka verkið upp og gefa út. „Þetta er allt byggt á verkinu og þessum þekktu stefjum úr því. Við reynum að hafa sem fjölbreyttastan takt,“ segir Halldór Ásgeirsson. „Þetta er dálítið frábrugðið upphaflega verkinu en samt mjög auðþekkjanlegt.“

Á tónleikunum verður verkið flutt í heild sinni og tekur flutningurinn um fimmtíu mínútur. Verður það lesið upp af Einari Aðalsteinssyni, sem vann upplestrarkeppni grunnskólanna árið 2000.

Alræði öreiganna, sem var stofnuð fyrir ári síðan, mun meðal annars feta í fótspor Sting sem hefur gert plötu byggða á verkinu. Auk þess hefur Sean Connery lesið söguna inn á plötu. „Ég vona að við séum að feta nokkuð ótroðnar slóðir í þessum útsetningum,“ segir Halldór.

Tónleikarnir í kvöld hefjast klukkan 22.00 og kostar 500 krónur inn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×