Tónlist

Hættu við tónleika

Rapparinn Snoop Dogg fær ekki að halda tónleika í Bretlandi.
Rapparinn Snoop Dogg fær ekki að halda tónleika í Bretlandi.

Bandarísku rappararnir Snoop Dogg og P Diddy hafa hætt við sameiginlega tónleika sína í Bretlandi eftir að Snoop var neitað um landvistarleyfi í landinu. Áttu þeir m.a. að koma fram í London og í Manchester.

„Þeir vissu að ég væri að koma fyrir sex eða sjö vikum, þannig að þeir hefðu getað neitað mér um landvistarsleyfi þá,“ sagði Snoop, sem heitir réttu nafni Calvin Broadus. „Ég get ekki stjórnað minni fortíð sem fyrrverandi klíkumeðlimur og fíkniefnasali en ég veit hvernig mér hefur tekist að snúa blaðinu við.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×