Handbolti

Hannes Jón í stað Markúsar Mána

Miðjumaðurinn Hannes Jón Jónsson hefur verið valinn í æfingahóp handboltalandsliðsins sem tekur þátt í sterku æfingamóti sem fram fer í Frakklandi um páskana. Hannes er kallaður í hópinn í stað Markúsar Mána Michaelssonar sem getur ekki tekið þátt sökum anna í vinnu.

Þetta er önnur breytingin sem er gerð á hópnum á skömmum tíma en Vilhjálmur Ingi Halldórsson tekur sæti Loga Geirssonar sem er meiddur. Hannes Jón hefur vakið mikla athygli fyrir vaska frammistöðu í norsku úrvalsdeildinni þar sem hann hefur verið að raða inn mörkum fyrir Elverum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×