Tónlist

Ghostigital flottir í Kaupmannahöfn

Ghostigital voru þéttir á tónleikum sínum í Kaupmannahöfn og Einar Örn Benediktsson var í miklu stuði.
Ghostigital voru þéttir á tónleikum sínum í Kaupmannahöfn og Einar Örn Benediktsson var í miklu stuði.

Hljómsveitin Ghostigital lék á tónleikum í Loppen í Kaupmannahöfn á föstudagskvöld. Vel var mætt á tónleikana, bæði af Dönum og Íslendingum sem búsettir eru í Danmörku.

 

Fjöldi áhorfenda mætti í Loppen og voru þeir vel með á nótunum.

„Ghostigital sýndu það og sönnuðu enn einu sinni að þeir eru frábært tónleikaband. Við höfum aldrei fengið jafn mikla athygli danskra fjölmiðla eins og fyrir þessa tónleika, sem er auðvitað frábært," segir Hjalti Már Einarsson, talsmaður íslenska tónleikafélagsins Beatless Propaganda í Kaupmannahöfn. Á föstudagskvöld léku Ghostigital á þeirra vegum á hinum fornfræga tónleikastað Loppen.

 

Einar Örn var sem fyrr prímusmótorinn á sviðinu.

Danski dúettinn Snake and Jet's Amazing Bullit Band hitaði upp fyrir Ghostigital og virtust tónleikagestir skemmta sér konunglega. „Við virðumst vera með puttann á púlsinum á dönsku senunni því Snake and Jet's skrifuðu undir plötusamning við Crunchy Frog daginn fyrir tónleikana okkar. Þetta voru því fyrstu tónleikar þeirra undir þeirra merkjum," segir Hjalti Már.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.